top of page

Er ESB „hnignunar­banda­lag“?

Writer: Jean-Rémi Chareyre
Jean-Rémi Chareyre
Mar 19
6 min read

Updated: Aug 19

Í umræðu um kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í ESB er því gjarnan haldið fram að aðildarríki sambandsins séu að glíma við efnahagslega stöðnun eða jafnvel hnignun. Er þá vísað til þess að hagvöxtur innan sambandsins sé lítill, atvinnuleysi hátt og samkeppnisstaða evrópskra fyrirtækja veik.


Hér verður ekki tekin afstaða til þess hvernig „hagsmunum Íslands er best borgið“, svo vísað sé í þennan alkunna frasa, enda snýst þessi grein ekki um það. Hins vegar telur höfundur mikilvægt að áhugamenn um málið, hvað sem þeim finnst um ESB, átti sig á því hvaða öfl eru að verki í efnahagsþróun Evrópu.


Það er sannleikskorn í kenningunni um hnignun álfunnar. Um nokkurt skeið hefur ríkt efnahagsleg stöðnun í mörgum Evrópuríkjum. Kenningin fer hins vegar út af sporinu þegar kemur að því að greina orsök vandans, sem er ýmist sögð vera ESB, evran eða íþyngjandi regluverk sambandsins.


Hugmyndin um að ESB hafi reynst hindrun á hagvexti aðildarríkja stenst ekki skoðun. Í fyrsta lagi hafa hagvöxtur og atvinnuleysi verið mjög misjöfn í mismunandi löndum sambandsins. Á Ítalíu hefur til að mynda enginn hagvöxtur mælst síðustu 20 árin. Í Þýskalandi hefur hins vegar mælst 2-3% hagvöxtur og í Póllandi 3-5% (sem er mun meira en á Íslandi). Sömu sögu er að segja um atvinnuleysi, sem mælist nú aðeins 3,1% í Póllandi en 9,8% á Spáni.


Ef ESB-samstarfið sem slíkt væri orsök efnahagslegrar stöðnunar mætti búast við svipaðri „stöðnun“ í öllum aðildarríkjum sambandsins, sem er ekki raunin. En ef stöðnunin er raunveruleg, að minnsta kosti í sumum löndum, hverjar eru þá orsakir hennar?


Myndritið hér að neðan gefur mikilvæga vísbendingu: hagvöxtur virðist hafa byrjað að hægja á sér á svipuðum tíma í öllum helstu löndum ESB á fyrri hluta áttunda áratugarins. Á tímabilinu 1945-1973 mældist meðalhagvöxtur á mann í löndum sambandsins um 4%, en aðeins 2-2,5% næstu 25 árin á eftir, eða fram til ársins 2000. Á fyrstu 25 árum nýrrar aldar hefur hann síðan verið að hanga í kringum 1%.



Einhvers konar vendipunktur virðist hafa orðið í kringum 1975. Aðrar mælingar staðfesta þennan vendipunkt enn frekar: um svipað leyti birtast tvær helstu plágur í efnahagskerfi margra Evrópuríkja, sem enn sér ekki fyrir endann á: hækkandi atvinnuleysi og sívaxandi skuldir ríkisins. En voru gerðar einhverjar grundvallarbreytingar á starfsemi sambandsins á þessum tíma sem gætu hugsanlega skýrt þennan vendipunkt? Svarið er nei.

Evrópusambandið var stofnað fljótlega eftir síðari heimsstyrjöld og bjó þá við kröftugan hagvöxt. Engin afgerandi stefnubreyting varð á áttunda áratugnum sem getur útskýrt skyndilega hnignun hagvaxtarins.


Gerðist eitthvað annað sem gæti útskýrt þessa þróun? Já, sannarlega. Árið 1973 varð svokölluð olíukreppa þegar olíuframleiðsla í heiminum dróst skyndilega saman. Eftir um 70 ár af nánast samfelldum vexti í olíuframleiðslu varð skyndilegur skellur eftir að olíuvinnslu Bandaríkjanna fór að hnigna og olíuríkjum í Miðausturlöndum tókst að semja sín á milli um að hemja eigin framleiðslu til að halda uppi hærra olíuverði.


Framleiðslan dróst fyrst saman um 5% árið 1973 og síðan um 15% árið 1979. Þessum olíukreppum fylgdi mikil verðbólga, háir vextir og efnahagssamdráttur. Þær marka því sögulegan vendipunkt fyrir efnahagskerfi heimsins.


Myndritið hér að neðan sýnir þetta glöggt: Á árunum 1950 til 1973 jókst olíuframleiðsla um 6-8% árlega (ritið sýnir meðalvöxt síðustu 10 ára), langt umfram fólksfjölgun sem var um 2% á ári. Þessi vöxtur hrynur hins vegar skyndilega niður um og eftir 1973. Hann tekur aðeins við sér á tíunda áratugnum en fer að hnigna aftur hægt og rólega eftir 2008 og kemst sjaldan yfir 1% eftir það, sem rétt dugar til að halda í við fólksfjölgun.



En hvort er eggið og hvort er hænan? Getur ekki verið að minni vöxtur heimshagkerfisins sé orsökin og minni olíuframleiðsla afleiðingin, frekar en öfugt? Tvær mikilvægar vísbendingar geta hjálpað til við að greina orsakasamhengið.


Í fyrsta lagi er erfitt að útskýra hnignandi hagvöxt öðruvísi. Hvernig má vera að Evrópulönd sem virtust hafa fundið töfrauppskrift að hagvexti hafi skyndilega „týnt“ henni og öll byrjað að taka rangar efnahagsákvarðanir á nákvæmlega sama tíma? Þetta virðist enn ólíklegra þegar haft er í huga að í þessum löndum hafa verið mjög ólíkar ríkisstjórnir við völd, sumar vinstrisinnaðar, aðrar hægrisinnaðar og allt þar á milli.


Sumir hafa bent á lýðfræðilega samsetningu þessara þjóða en margar þeirra búa við lága fæðingartíðni og stöðnun í fólksfjölda. En hér afsannar Pólland aftur kenninguna: Þar í landi hefur engin fólksfjölgun orðið síðustu 35 ár enda fæðingartíðni með þeim lægstu í Evrópu. Samt hefur landsframleiðsla Póllands tvöfaldast á síðustu 20 árum.


Við þetta bætist að hnignandi hagvöxtur einskorðast ekki við Vestur-Evrópu. Hann er líka vel sýnilegur í öðrum iðnríkjum svo sem Bandaríkjunum og Japan. Á árunum eftir síðari heimsstyrjöld mældist hagvöxtur í Bandaríkjunum 4-5% en á síðustu árum hefur hann verið í kringum 1-2%. Á sama tíma hafa skuldir ríkisins náð sögulegu hámarki. Í Japan hefur nánast enginn hagvöxtur verið síðustu 35 árin. Svipuð þróun og svipuð tímasetning í svo mörgum ólíkum löndum bendir til þess að orsökin sé hnattræn og kerfisbundin frekar en afleiðing af „rangri“ efnahagsstjórn eða lýðfræðilegri þróun í einstökum ríkjum .


Þar að auki eru margar vísbendingar um að olíuiðnaðurinn sé að rekast á sífellt fleiri hindranir þegar kemur að því að viðhalda, hvað þá auka, olíuframleiðslu. Síðan 2013 hefur fjárfesting í olíuleit dregist saman og nýir olíufundir verða sífellt rýrari. Olíuleit og -vinnsla eru að verða sífellt kostnaðarsamari, áhættusamari og tæknilega flóknari.


En hvers vegna fjalla svo fáir fræðimenn og stjórnmálamenn um þessi tengsl hagvaxtar og olíuframleiðslu? Algeng ranghugmynd um olíuiðnaðinn er sú að olíuverð á hverjum tíma endurspegli framboð af olíu í heiminum. Sú ranghugmynd byggir á gamalli hagfræðikenningu. Samkvæmt henni verða auðlindir dýrari eftir því sem þær verða sjaldgæfari. Margir hagfræðingar láta því nægja að fylgjast með hráolíuverði til að átta sig á því hvort um einhvern skort geti verið að ræða. Svo lengi sem verðið helst frekar lágt draga þeir þá ályktun að nóg sé til af olíu og að orsök efnahagsstöðnunar sé þess vegna að finna annars staðar.


En þessi hagfræðikenning er villandi: olíuverð getur ekki hækkað endalaust, sama hver eftirspurnin er. Veski neytenda er ekki ótakmörkuð auðlind. Þegar olíuverð hækkar umfram ákveðinn sársaukaþröskuld neyðast neytendur og fyrirtæki til að neyta minna af henni, og þá lækkar verðið aftur, jafnvel þótt framboð hafi minnkað. Orkusérfræðingar tala um að hátt olíuverð „drepi eftirspurn“, oftast í formi verðbólgu, skuldakreppu og almennrar efnahagskreppu. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að fylgni milli framboðs af olíu og olíuverðs er engin. Til skamms tíma leiðir olíuskortur til verðhækkana, en til langs tíma getur olíuverð ýmist hækkað eða lækkað óháð framboði, eins myndritið að neðan sýnir:



Ef hagvöxtur er háður vexti í olíuframleiðslu gefur auga leið að hann getur ekki haldið áfram nema olíuframleiðsla aukist um leið. Í einhverjum tilfellum er hægt að skipta út olíu fyrir aðra orkugjafa og græða nokkur ár af hagvexti í viðbót, eins og var gert eftir olíukreppur áttunda áratugarins. Fyrr eða síðar rekast menn þó aftur á sama vegg: Stærð hagkerfisins takmarkast af framboði af olíu í heiminum, enda er sá orkugjafi alltumlykjandi í nútímahagkerfi: eldsneyti á ýmsa framleiðslustarfsemi, hráefni í plast- og efnaframleiðslu, framleiðsla á áburði fyrir landbúnað, hráefni í fataiðnaði, málmframleiðsla og svo framvegis.


Þar að auki eru alþjóðaviðskipti ofurseld vöruflutningum sem ganga að mestu leyti fyrir olíu. Olíuknúin flutningaskip, vörubílar og flugvélar eru blóðkornin í blóðrás hagkerfisins og orkuskiptin eru háð ýmsum takmörkunum þegar kemur að löngum aðfangakeðjum.


Minni vöxtur í olíuframleiðslu útskýrir minni hagvöxt á heimsvísu, en aðrir þættir geta hins vegar útskýrt hvers vegna hagvöxtur er misjafn eftir löndum. Einn þátturinn er aðgangur að ódýru vinnuafli, sem getur útskýrt háan hagvöxt í Póllandi á síðustu árum. Hnignun olíuframleiðslu virkar svolítið eins og tónlistarstólar ‒ það tapa ekki allir í einu. Fyrst tapa þeir sem eru veikastir fyrir, svo sem hátekjuþjóðir þar sem samkeppnishæfni er minni vegna hás launakostnaðar.


Þjóðir sem hafa aðgang að ódýru vinnuafli og/eða verðmætum náttúruauðlindum geta sloppið ágætlega í fyrstu og fundið sér stól á kostnað annarra. En smátt og smátt fækkar stólunum og á endanum tapa allir. Hið svokallaða „hnignandi“ efnahagsveldi Evrópu er þannig kanarífuglinn í kolanámunni: smátt og smátt mun stólunum halda áfram að fækka og hagvöxturinn hægja á sér hjá sífellt fleiri þjóðum.


Á Íslandi eru nú þegar merki um þessa „hnignun“: hagvöxtur síðustu ára hefur mælst um 2-2,5% að meðaltali en hagvöxtur á mann hefur verið sáralítill. Í nýlegu minnisblaði fjármálaráðherra segir: „Af hagtölum að dæma virðist [sem] drifkraftar tímabundins hagvaxtar [séu] í rénun og við blasir hagkerfi sem hefur lítið sem ekkert vaxið, leiðrétt fyrir fólksfjölgun, í hartnær áratug,” auk þess sem atvinnuleysi er að aukast, þrátt fyrir loforð núverandi ríkisstjórnar um að „ræsa vélarnar“.


Leikreglurnar eru að breytast og ríki sem vilja fóta sig í nýjum heimi þurfa að losa sig við hagvaxtarmeinlokuna. Miðaldra manneskja sem setur sér það markmið að vera ung að eilífu er dæmd til að verða fyrir vonbrigðum. Sem betur fer er hægt að setja sér önnur lífsmarkmið sem eru mun raunhæfari og ekki síður eftirsóknarverð. Hvernig væri að stefna frekar að því að byggja upp stöðugt og heilbrigt lágkolefnishagkerfi sem reiðir sig fyrst og fremst á innlenda orkugjafa og stuttar aðfangakeðjur? Slíkt hagkerfi væri síður viðkvæmt fyrir orkukrísum og öðrum utanaðkomandi áföllum.


Markmiðið um áfallaþolið hagkerfi rímar hins vegar illa við viðleitni stjórnvalda til að ýta undir stjórnlausan vöxt allra atvinnugreina, óháð notkun þeirra á jarðefnaeldsneyti. Þær atvinnugreinar sem geta hjálpað til við að auka orkuöryggi þurfa að vaxa og geta þar með skapað störf, en hugmyndin um að allar atvinnugreinar geti haldið áfram að vaxa út í hið óendanlega er ekki raunhæf.


Hagkerfi framtíðarinnar verður minna í sniðum, í krónum talið, enda verður aldrei hægt að fylla að öllu leyti í skarðið sem jarðefnaeldsneytið skilur eftir sig. En ávinningurinn gæti hins vegar verið verðmætari en nokkuð annað: aukið orkuöryggi, aukinn efnahagsstöðugleiki og aukin seigla gagnvart utanaðkomandi áföllum. Þetta er ef til vill eftirsóttari framtíðarsýn en endalaus hagvöxtur sem lætur endalaust bíða eftir sér…



Comments


Post: Blog2_Post
bottom of page